Góður dagur hjá Framsóknarmönnum!
18.1.2009 | 23:13
Þetta er góður dagur hjá Framsóknarmönnum. Framsóknarmaðurinn Barack Obama hylltur í Washington og Framsóknarmaðurinn Sigmundur Davíð hylltur í Reykjavík ásamt ungri, öflugri nýrri forystu Framsóknarflokksins.
Báðir fulltrúar Framsóknar nýrra tíma - annar í Bandaríkjunum og hinn á Íslandi.
Fortíðin grafin á báðum stöðum. Nýtt og spennandi upphaf.
Inntökubeiðni í Framsókn nýrra tíma
Obama hylltur í Washington | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Facebook
Athugasemdir
Mikil er trú þín kona.
Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 00:20
Þetta þrástagl um Obama sem Framsóknarmann er farið að vekja upp smá gæsahúð.... ekki meir, ekki meir!
Lítill bændaflokkur á Íslandi á ekki neina samsvörun við alþjóðlega strauma, mannréttindi eða baráttu blökkumanna fyrir jafnri stöðu í samfélaginu.
Gunnlaugur B Ólafsson, 19.1.2009 kl. 00:25
Adolf Hitler var náttúrlega framsóknarkurfur af verstu sort - en Obama? Er hann ekki of greindur til þess?
Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 00:29
Gunnlaugur.
Gæsahúð þín breytir því ekki að Obama er Framsóknarmaður og að Framsóknarflokkurinn hefur alla tíð tekið þátt í frjálslyndum alþjóðlegum straumum og barist fyrir mannréttindum og réttindum blökkumanna fyrir jafnri stöðu í samfélaginu.
Vil gjarnan benda þér á eftirfarandi sem við Framsóknarmenn samþykktum í stefnuskrá okkar í dag og er ágætt dæmi sem undirstrikar mannréttindabaráttu okkar Framsóknarmanna:
"Mikilvægt er að samkynhneygðir njóti réttinda til jafns við aðra í samfélaginu. Rétt er að löggjöfin endurspegli ekki aðgreiningu gagnvart þeim. Því skal hafa eina hjónabandslöggjöf í landinu sem gildir fyrir alla."
-
Hallur Magnússon, 19.1.2009 kl. 01:06
Baldur!
Er ekki tími til þess að þú komir út úr 19. aldar moldarkofanum og farir að líta í kring um þig?
Þú veist að stefna Adolfs Hitlers var nærri stefnu flokks sem stendur þér nær en Framsóknarflokksins - enda voru það Framsóknarmenn sem stóðu hart í fæturna gegn Nazismanum alla tíð - annað en þáverandi flokkar bæði til hægri og vinstri - meðan það hentaði meistara Djúkasil!
Hallur Magnússon, 19.1.2009 kl. 01:10
Hallur, mér finnst þú ganga of nærri þér í þessum taumlausa fögnuði yfir manni sem er nýgenginn í flokkinn og enginn veit hvað hann stendur fyrir í pólitík, enginn þekkir vinnubrögð hans eða getu til að standa í brúnni. Ótrúlegt örþrifaráð hjá framsókn og sýnir hvernig þeim leið á bjargbrúninni. Fagna skaltu í hófi, Hallur!
Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.