Tímamótasamvinna Velferðarráðs og SÁÁ
30.10.2008 | 12:56
Tímamótasamvinna Velferðarráðs Reykjavíkurborgar og SÁÁ er að hefjast. Borgarráð hefur samþykkt tillögu Velferðaráðs um að semja við SÁÁ um að SÁÁ taki að sér rekstur á nýju búsetuúrræði með félagslegum stuðningi fyrir allt að 20 manns. Sem varaformaður Velferðarráðs er ég afar ánægður með að þetta samstarf er að hefjast.
Félagsmálaráðuneytið kemur einnig að þessu verkefni með Velferðarráði Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða búsetuúrræði fyrir einstaklinga sem hafa hætt neyslu áfengis og eða vímuefna, en þurfa á umtalsverðum stuðningi að halda til að geta tekið virkan þátt í samfélaginu.
Hið nýja búsetuúrræði verður ekki einungis tímabundið heimili þeirra einstaklinga sem þar munu búa heldur er ætlunin að þar fari fram öflug virkniþjálfun svo heimilismenn geti síðar haldið út í lífið og staðið þar á eigin fótum. Eðli málsins vegna þurfa þeir í fyrstu á miklum félagslegum stuðningi að halda en sá stuðningur mun væntanlega minnka þegar færnin til að taka þátt í samfélaginu eykst og að lokum geta einstaklingarnir flutt út í samfélagið að nýju.
Þess vegna er mikilvægt að heimili fólksins sé í nánd við hið daglega líf samfélagsins í Reykjavík en ekki fjarri daglegu amstri.
Það er afar mikilvægt að samstarfsaðiljar Reykjavíkurborgar séu öflugir og kunni til verka. Því er afar mikilvægt að fá SÁÁ að þessu verkefni með Velferðasviði Reykjavíkurborgar.
Borgin semur við SÁÁ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hallur. Það virðist ekkert hafa gerst í þessum málum fyrr en þú komst að þessu. Hafðu þökk fyrir. "Ég verð að segja það"
Haraldur Bjarnason, 30.10.2008 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.