Geir toppar sjálfan sig í að gera ekki neitt!
5.10.2008 | 23:41
Nú hefur Geir Haarde toppað sjálfan sig í því að gera ekki neitt! Maraþon fundarhöld um helgina með öllum sem nöfnum tjáir að nefna - og svo á ekki að gera neitt!
Ég á bara ekki orð!!!
Ekki þörf á aðgerðapakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
nákvæmlega.. ég fór aðeins inn á þetta á mínu bloggi áðan.. niðurstaða helgarinnar er: Bankarnir munu minnka erlend umsvif !! frekar aum niðurstaða finnst mér..
Óskar Þorkelsson, 5.10.2008 kl. 23:54
Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að standa vörð um Davíð Oddsson, afkoma þjóðarinnar skiptir Flokkinn minna máli en að foringinn haldi reisn sinni. Þetta minnir orðið ansi mikið á þriðja ríkið.
G. Valdimar Valdemarsson, 5.10.2008 kl. 23:56
sammála þessu öllu, ástandið í landinu er ríkisstjórninni að kenna vegna þess að þeir gerðu ekki neitt!! hahaha.....aumingja mannleysan....eflaust ágætiskall en getur ekki unnið undir pressu ætti nú að fá einhvern sem kann sitt fag í sitt sæti....
Guðrún Fanney Einarsdóttir, 6.10.2008 kl. 00:09
Hélt að það væri ekki hægt að toppa þvælu liðinna vikna.
Fréttir farnar að berast af því að fólk geti ekki millifært af reikningum sínum í UK vegna álags. (Lí og KÞ)
Ég held að Gylfi Magnússon haf ekki verið að fara með neinar fleipur á föstudag. Fyrstu klukkutímarnir í fyrramálið verða rosalegir en það má búast við því að kauphöllin opni ekki.
Hvernig gengur að mynda nýju stjórnina Hallur?
Jóhannes Snævar Haraldsson, 6.10.2008 kl. 02:14
Bíð bara eftir að Össur og Steingrímur hringi!
Hallur Magnússon, 6.10.2008 kl. 04:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.