Óntalegar fréttir af sprengjutilræði í Tyrklandi!
27.7.2008 | 23:39
Það er frekar ónotalegt að frétta af sprengiárás í Tyrklandi - svona rétt eftir að maður yfirgefur landið eftir frábært frí. Reyndar ekki í Istanbúl þar sem sprengjurnar sprungu - heldur á Marmaris - en ónotalegt samt!
Þetta sprengjutilræði kemur hins vegar ekki alveg á óvart. Tyrkir og Kúrdar hafa eldað grátt silfur saman um árabil - og kúrdneskir skæruliðar ráðist á Tyrki - og Tyrkir ráðist á Kúrda! Átök landlæg á heimasvæðum Kúrda á landamærum Tyrklands, Íraks og Íran - þar sem Kúrdar kalla Kúrdistan!
Reyndar gæti einnig verið um að ræða íslamska öfgamenn!
Sprengjuárásir í Tyrklandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Góðan daginn,
Þetta er athyglisverð hugleiðing hjá þér. En tilgangur hryðjuverka er sá einn að skelfa fólk og ná stjórn á því á þann hátt. Þetta var leið Múhameðs spámanns og þetta er leið sporgengla hans í dag, enda hann fyrirmynd allra Múslíma.
Hryðjuverk skilgreind:
, , hvað eru hryðjuverk og hvað ekki“
Hryðjuverk almennt eru skilgreind sem árás á almenna borgara sem hefur engan hernaðarlegan tilgang heldur aðeins til að hrella og hræða íbúana og hafa áhrif á kosningar meðal annars.
Málsgrein, Kóraninn: 009.005. En þegar bann mánuðirnir eru liðnir, þá skuluð þið berjast við og drepa (aqtuloo) hina vantrúuðu, takið þá fasta, sitjið um þá, veitið þeim fyrirsát alls staðar á öllum sviðum hins Heilaga Stríðs.
Hernaðararmur Íslams fylgir stríðsmálsgreinum Kóransins og Annálanna bókstaflega, ásamt ævisögu Múhameðs..
Bukhari: V4B52N220: Sendiboð Allah mælti svo: ,,Ég hefi verið gerður sigursæll með hryðjuverkum.”
Úr hinum heilaga Kóran, Kaflinn um þýfið, 008:012, ,,Ég mun hrella og skelfa hjörtu hinna vantrúuðu (ekki-Múslíma). Hálshöggvið þá, höggvið af þeim fingurgómana, vegna þess að þeir standa gegn Allah.
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.