Bonn! Hver man eftir Bonn?
20.7.2008 | 14:44
Bonn! Hver man eftir Bonn? Ég áttaði mig þegar ég rakst á Bonn í texta sem ég var að lesa að ég hafði ekki heyrt á borgina minnst í langan, langan tíma!
Ætli krakkar um tvítugt viti nokkuð um Bonn - þessa fyrrum höfuðborg Vestur-Þýskalands? Borgina sem alltaf var í fréttum þegar ég var að alast upp.
Ég hef ákveðnar efasemdir um það.
Í kjölfar þess að járntjaldið og Berlínarmúrinn féll - þá hvarf Bonn hægt og rólega úr fréttum. Enda ekki skrítið. Bundestag, Bundesrat og Bundespräsident fluttu frá Bonn til Berlínar - hinnar hefðbundnu höfuðborgar Þýskalands.
Bonn var höfuðborg Vestur-Þýskalands frá 1949 - 1990 og höfuðborg sameinaðs Þýskalands 1990 - 1999. Það er ekki lengra síðan að Berlín tók aftur við sem höfuðborg. Samt virðast allir hafa gleymt Bonn!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Facebook
Athugasemdir
Heyrðu ég man eftir Bonn! Ég hef meira að segja komið þangað, held að hún hafi verið valin höfuðborg vegna legu sinnar miðsvæðis í Vestur Þýskalandi og almenns meinleysis.
Pétur Sig, 20.7.2008 kl. 17:26
Ég man eftir Bonn, en ég fæ víst ekki að teljast um tvítugt
Júlíana , 20.7.2008 kl. 22:17
Bonn, já ... mikið er langt síðan maður hefur heyrt þá borg nefnda. Hvað skyldu menn vera að bauka þar síðan stjórnsýslan hvarf á braut? Skyldi hafa orðið þar umtalsverð fólksfækkun við brotthvarf allra opinberu starfsmannanna? Gaman væri að vita.
Helgi Már Barðason, 20.7.2008 kl. 22:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.