Áhyggjuleysi Árni á Kirkjuhvoli gáfumerki eða grandaleysi?
10.6.2008 | 21:14
Hvort ætli áhyggjuleysi Árna á Kirkjuhvoli yfir efnahagsmálunum beri vott um gáfumerki og djúpan skilning á efnahagsmálum eða ábyrgðarlaust grandaleysi?
Það er ljóst að fjárlagafrumvarp hans síðasta haust bar vott um grandaleysi - enda varð það til þess að magna upp mikið verðbólgubál!
Í frétt Moggans segir:
Ég held ekki að við þurfum að hafa of miklar áhyggjur," segir Árni. Eins og hlutir hafa þróast er samdráttarhættan aðallega tengd alþjóðlegri þróun."
Árni telur líklegt að íslenska hagkerfið standi í stað á næsta ári en ekki sé líklegt að alvarlegur samdráttur verði. Síðan muni hagkerfið taka við sér á ný árið 2010.
Ekki er ég viss um að stjórnendur fyrirtækjanna sem mynda úrvalsvísitöluna í Kauphöllinni séu sama sinnis, en í dag stóð vísitalan í lægsta gildi frá því 17. ágúst 2005.
Ekki heldur stjórnendur þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem nú eru í miklum erfiðleikum - ekki vegna slæmrar eiginfjárstöðu - heldur vegna alvarlegs lausafjárskorts. Ég er ekki viss um að þessir stjórnendur séu sammála Árna á Kirkjuhvoli varðandi lausafjárstöðu, en í frétt Moggans segir um Árna:
Þá segir hann að staða peningamála hafi batnað á Íslandi á síðustu vikum, einkum þó hjá bönkunum, sem hafi sýnt styrk sinn í þeim ólgusjó sem verið hafi. Það hafi þeir getað vegna þess að þeir séu vel fjármagnaðir og ráði yfir nægu lausafé.
En við skulum vona að áhyggjuleysi Árna á Kirkjuhvoli beri vott um gáfumerki frekar en grandaleysi!
Dregur úr hagvexti en samdráttur ólíklegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.6.2008 kl. 05:31 | Facebook
Athugasemdir
Árni .. fjármálaráðherra.. og gáfumerki í sömu stetningu.. eitthvað er vitlaust hér.. eitthvað passar ekki...
Óskar Þorkelsson, 10.6.2008 kl. 21:23
Nú er orðin ástæða til að hafa áhyggjur,
þegar ráðherrar þessarar ríkisstjórnar byrja að telja okkur trú um að allt sé í lagi, þá verð ég hræddur. Var það ekki Geir okkar sem sagði í haust að hér væri allt í stakasta lagi ?
Einar Guðm. (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.