Gagnaveitan áfram almenningsveita
27.11.2007 | 22:37
Það er fagnaðarefni að Gagnaveita Reykjavíkur, þetta verðmæta dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, verði áfram almenningsveita. Það er æskilegt að til staðar sé trygg gagnaveita sem sjái fyrirtækjum og heimilum örugga ljósleiðaratengingu á hóflegu verði.
Tilvist veitunnar tryggir samkeppni - í stað fákeppni - og þar af leiðir lægra og stöðugra verð til neytenda en ella.
Hafa ber í huga að um er að ræða veitu sem tryggir söluaðilum stafrænnar þjónustu, stórum og smáum, aðgang að heimilum almennings. Það tryggir samkeppni að hafa almenningsgagnaveitu sem valkost í stað þess að mögulega þurfa einungis að reiða sig á stóra, sterka einkaaðila í fákeppni sem nýta fákeppnisaðstöðu sína til að hygla dreifingu efnis eigin fyrirtækja á kostnað annarra.
Hætt við að selja Gagnaveitu Reykjavíkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.