Kraftur náði til áhorfenda á Gimli Film Festival!

Gimli Film Festival er kannske ekki það sama og kvikmyndahátíðin í Feneyjum - en Gimli Film Festival er samt virt kvikmyndahátíð í Kanada! Meðal kvikmynda sem sýnd var í Gimli þetta árið var hin frábæra og einlæga mynd Skagfirðingsins Árna Gunnarssonar "Kraftur" sem í ensku útgáfunni hlaut heitið "Kraftur, The Last Ride"

Kanadamenn - og væntanlega margir Vestur-Íslendingar - fengu því að sjá þessa skemmtilegu heimildamynd næst á eftir Skagfirðingum - því Árni sýndi "Kraft" á forsýningu í Skagafirð í vor við afar góðar undirtektir.

Í "Krafti" fylgir Árni Gunnarsson eftir þeim félögum Þórarni Eymundssyni tamningarmanni og úrvalsknapa og stórgæðingnum Krafti allt frá tamningu og þjálfun til heimsmeistaramóts íslenska hestsins í Hollandi - þar sem Kraftur - eðli málsins vegna - varð eftir þar sem úrvalshross íslensk sem taka þátt í heimsmeistarmóti eiga ekki afturgegnt til Íslands - ekki frekar en flestir Íslendingarnir sem fluttust til Kanada og settust að í Gimli fyrir um það bil öld síðan.

Ég er ekki mikill hestamaður - þótt ég hafi yndi af því að ríða út. Hef ekki þolinmæði að horfa á langar myndir um hesta. En ég hélt athyglinni yfir "Krafti" - eins og kanadísku áhorfendurnir. Þurfti meira að segja að berjast við tárin á köflum - eins og Kanadamennirnir - sem sumir létu þau samt renna.

Ástæðan einföld. Heimildarmyndin "Kraftur" er ekki bara mynd um hest og mann - heldur miklu meira. Tilfinningaþrungin mynd sem allir skilja sem einhvern tíma hafa þurft að sjá á eftir ástvini.

Ég hlakka til að sjá "Kraft" sýnda í kvikmyndahúsi hér heima - og er þess fullviss að myndin á eftir að ganga í sjónvarpsstöðvum um allan heim á næstu misserum og árum.


mbl.is Hrun Michael Moore á Feneyjahátíðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland eitt kjördæmi - persónukjör!

Ísland eitt kjördæmi. Það hefur verið bjargföst trú mín afar lengi. Það var eitt af fjórum helstu baráttumálum þegar ég fór í prófkjör fyrir Framsókn í Reykjavík árið 1995. Það hlaut ekki hljómgrunn meðal framsóknarmanna þá - en margir hafa skipt um skoðun. Sérstaklega á landsbyggðinni eftir að nýjasta kjördæmaskipanin var tekin upp.

Þá á að gefa kjósendum kost á að raða fólki á framboðslistum við kosningar þar sem Ísland er eitt kjördæmi. Flokkarnir ákvarði röð frambjóðenda á framboðslista. Sú röð gildi ef ekki er endurraðað - en vægi endurröðunar sé algert - ekki hlutfallslegt.

Er reiðubúinn að skoða aðrar útfærslur á persónukjöri innan Íslands sem eins kjördæmis.

Hins vegar er þetta eitt þeirra mála sem stjórnlagaþing fólksins hefði átt að ákvarða. Er afar dapur yfir því að núverandi ríkisstjórn hafi ekki treyst fólkinu í landinu til að ákvarðar framtíðarstjórnskipan með því að niðurstaða stjórnlagaþings yrði látin í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu - en þó Skárra En Ekkert að fá ráðgefandi stjórnlagaþing.


mbl.is Atkvæðavægi átalið af eftirlitsnefnd ÖSE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavík flottari en Kaupmannahöfn!

Reykjavík er flottari en Kaupmannahöfn!

Það er athyglisvert að borgastjórinn í Reykjavík er langt frá því að vera hæst launaði sveitarstjórinn á Íslandi þótt Reykjavík sé með lang umsvifamesta reksturinn. Hins vegar er ljóst að borgarstjórinn í Reykjavík er að vinna fyrir laununum sínum - sem þó hafa verið skert eins og laun annarra borgarstarfsmanna með laun yfir 300 þúsundum og kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg.

Með samhentu átaki allra flokka í borgarstjórn - átaki sem byggir á samvinnustefnu sem meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks innleiddu síðastliðið haust - og ábyrgir leiðtogar hinna flokkanna tóku undir og unnu að - hefur Reykjavíkurborg tekist að spara verulega í rekstri borgarinnar þannig að ekki er halli á rekstri borgarinnar þrátt fyrir erfitt efnahagsástand.

Í því sparnaðarátaki lék starfsfólk Reykjavíkurborgar lykilhlutverk - því það voru fjölmargir starfsmenn borgarinnar sem í samheldu átaki fundu fjölmargar sparnaðarleiðir í borgarkerfinu - sparnaðarleiðir sem urðu til þess að ekki þurfti að skerða grunnþjónustu borgarinnar og ekki þurfti að segja upp fastráðnu starfsfólki.

Þessi árangur gæti kannske orðið útflutningsvara?

Var að lesa frétt þar sem kemur fram að Kaupmannahafnarborg kynni að vera á leið undir stjórn skilanefndar vegna slæms fjárhagsástands borgarinnar!

Hanna Birna, Óskar og Dagur B. ættu kannske að skreppa til Kaupmannahafnar og kenna borgaryfirvöldum þar hvernig samvinnustefna Reykjavíkurborgar virkar - og aðstoða við innleiðingu slíkrar stefnu í Kaupmannahöfn!  Svandís Svavarsdóttir ætti einnig að fá smá frí úr ráðherravinnunni og taka þátt í þessu þróunarsamvinnuverkefni með Kaupmannahafnarborg!

Staðreyndin er nefnilega sú að Hanna Birna, Óskar, Dagur B. og Svandís unnu saman sem heild að hagsmunum Reykjavíkurborgar síðastliðinn vetur. Þau eiga öll heiður skilið fyrir það.

Vonandi mun sambærileg samvinna halda áfram í vetur - þótt það sé kosningavetur. Ég treysti því að Dagur B. og Þorleifur haldi áfram samvinnu við meirihlutann í þágu borgarbúa. Það er sérstakklega mikilvægt nú - bæði vegna efnahagsástandsins - en ekki síður að slíkt getur fest góða samvinnu meirihluta og minnihluta í sessi í borginni - óháð því hverjir munu skipa meirihluta borgarstjórnar á næsta kjörtímabili!


mbl.is Bæjarstjóri Seltjarnarness hæstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. júlí 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband