Barbabrella í boði Samfylkingar og VG

Við erum að upplifa Barbabrellu í boði Samfylkingar og VG. Aðferðarfræðin er nú að segja að það sé allt orðið betra - þótt allt sé enn á mikilli niðurleið - samanber miklar hópuppsagnir nú um mánaðarmótin.

Aðferðafræðin verður að halda því fram að ríkisstjórnin sé að ná tökum á vandamálunum - þótt ráðleysið sé allsráðandi.

Samfylkingin og VG munu hamra á því að hlutirnir séu að skána - og reyna að sópa vandamálunum undir teppið fyrir kosningar. Einhverjir fjölmiðlar munu fylgja eftir og skella málningu yfir ryðið í von um að hún flagni ekki af fyrr en eftir kosningar.

Vonandi sér þjóðin gegnum blekkingarvefinn!


mbl.is Sér fyrir endann á hrunsferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn treystir ekki þjóðinni fyrir framtíð sinni!

Það eru gömul sannindi og ný að Sjálfstæðisflokkurinn treystir þjóðinn ekki fyrir framtíð sinni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð viljað hafa taumhald á lýðræðinu - tryggja að hagur flokksins komi fyrst - síðan hagur þjóðarinnar.

Það er enn einu sinni að sannast í afstöðunni til stjórnarskrármálsins.

Vandamálið hefur verið gegnum tíðina verið að Sjálfstæðismenn hafa haft mikil ítök í fjölmiðlum - bæði prentmiðlum og í ríkisfjölmiðlunum - þótt gamlir kommar hafi verið inn á milli í Útvarpi Reykjavík.

Þannig hafa Sjálfstæðismenn getað snúið umræðunni á haus þegar þeim hefur hentað.

Sjálfstæðismenn munu reyna þetta í fjölmiðlunum í stjórnarskrármálinu - og klárlega varðandi stjórnlagaþingið - sem þeir eru líka á móti því þeir vilja ekki að þjóðin móti sjálf sína framtíð - án þess að Sjálfstæðismenn geti stjórnað því að flokkurinn komi fyrst - svo þjóðin.

Samfylkingin hefur lært þetta af Sjálfstæðisflokknum. Umfjöllun miðla sem sumir hafa kennt við Baug hefur gegnum tíðina verið afar hliðholl Samfylkingunni - og ítök þeirra á ríkisfjölmiðlunum eru sterk.

Það er nefnilega unnt að snúa sannleikanum á hvolf. Gott dæmi um það er frá því fyrir tíma Sjálfstæðisflokk og Samfylkingar - en gott dæmi um það hvernig Sjálfstæðisflokkurinn - og undanfarin ár Samfylking - hafa snúið umræðunni á hvolf og komist upp með það.

Þjóðsagan segir að bændur á Suðurlandi hafi verið á móti símanum - vegna þess að þeir riðu til Reykjavíkur til að mótmæla samningi sem Hannes Hafstein var að gera við Mikla Norræna símafélagið um 99 ára einokun þeirra á símatengingu frá umheiminum við Ísland - og til að mótmæla eignaupptöku ríkisins á landi bænda undir símalínurnar.  Það var ástæðan.

Reyndar bentu þeir einnig á að það gæti verið hagstæðara að byggja fyrst upp loftskeytasamband við umheiminn og töldu það getað hentað íslensku dreifbýli betur - svona GSM sími þess tíma!

En Hannes Hafstein sneri þessu á hvolf og kom því þannig fyrir að í stað þess að verið væri að berjast gegn einokunarsamningi til 99 ára - sem mörgum áratugum síðar kom okkur afar illa - þá væru bændur gegn tækniframförum og símanum - sem var fjarri lagi!

Þessi Reykjavíkurreið sunnlenskra bænda hefur oft verið notuð sem dæmi um meint afturhald - algerlega að óseskju.

En svona vinnur íhaldið - og Samfylkingin.


mbl.is Vilja vísa stjórnarskrármáli frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Láta vinstri flokkarnir bindindismennina borga brúsann?

Alþjóð er að gera sér grein fyrir að leið Framsóknarflokksins um 20% leiðréttingu er líklega langbesta leiðin til þess að verja heimili og fyrirtæki og koma efnahagslífinu af stað aftur.

Þær slitróttu hugmyndir Samfylkingar og VG virðast sambærilega og sú leið að láta bindindismennina borga brúsa ofdrykkjumannanna, eins og eftirfarandi dæmisaga lýsir svo ljómandi vel:

Hilda er bareigandi í Berlín. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.

Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega  fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn.

Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Hildu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni.

Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Hildu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta  vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.

Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum  viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og  Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn  þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um  allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða  hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau  eru metsöluvara.

Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá  ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að   drykkjuhrútarnir á bar Hildu borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir  geta það hins vegar ekki. Hilda getur því ekki staðið í skilum við  sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla  um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall.

Nýr  veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og  hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi  Hildu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið  af keppinauti.

Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í  marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.

Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann.


mbl.is Verðtryggingin burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband