Færsluflokkur: Matur og drykkur
Kíló af kartöflum á 1250 krónur í Hagkaup!
29.5.2008 | 23:21
Þeir í Hagkaup voru að reyna að plata inn á mig kartöflum á 1250 krónur kílóið! Mér fannst það aðeins of dýrt og skilaði kartöflubakkanum á kassanum. Varð að dröslast með kartöflurnar þangað því þær voru ekki merktar í hillunni.
Reyndar var um að ræða niðurbrytjaðar kartöflur í álbakka með einstaka bút af sætum kartöflum - svona 5% af heildinni - sem ætlaðar voru beint á grillið. Þeir kölluðu þetta líka kartöflusalat - en innihaldið var þó bara brytjaðar kartöflur - hefðbundnar og sætar - með smá jurtaolíu.
En mér er alveg sama - 1250 krónur kílóið!
Ætli doktor Gunni viti af þessu?
(Álbakkinn 400 gr. var á 499 kr)
Óli "Léttfeti" og Mjólka í Borgarnes!
25.3.2007 | 12:02
Það eru ánægjuleg tíðindi að vinur minn Ólafur "Léttfeti" Magnússon hyggist flytja Mjólku í Borgarnes vegna þess að starfsemin hefur sprengt utan af sér í núverandi húsnæði.
Gleði mín er þríþætt.
Í fyrsta lagi gleðst ég yfir velgengni vinar míns Ólafs "Léttfeta".
Í öðru lagi gleðst ég yfir velgengni Mjólku sem er nauðsynlegt aðhald risans MS Auðhumlu, bæði á neytendamarkaði og gagnvart bændum sem hafa nú val um hverjum þeir selja mjólkina sína.
Í þriðja lagi gleðst ég yfir því að aftur er farið að vinna mjólk í Borgarnesi, sem reyndar er nú orðinn hluti Kolbeinstaðahrepps hins forna, enda hálfur Kolhreppingur. Þetta styrkir atvinnulífið á þessum slóðum.
Svona í lokin fyrst ég er farinn að snerta sameiningarmál - þá skil ég ekkert í því afhverju sveitarfélagið var ekki nefnt því tígurlega nafni "Eldborg" - þegar Eldborg í Hnappadal kom inn í sveitarfélagið með Kolbeinsstaðahreppi hér um árið
Svo er nú það!
Afurðastöð Mjólku verði flutt í Borgarnes | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afnemum tolla á 3. heiminn!
23.3.2007 | 23:15
Ég varð hugsi yfir frétt um að Íslendingar hyggist aftur setja tolla á grænmeti sem flutt er inn frá öðrum ríkjum en þau sem eru innan evrópska efnahagssvæðisins (reyndar var það orðað innan Evrópusambandsins sem lýsir vankunnáttu blaðamanns á stöðu okkar í Evrópu).
Ég hef ekkert á móti því að setja toll á grænmeti frá Bandaríkjunum eða Ástralíu ef það þarf á annað borð að setja á tolla. Hins vegar tel ég að við Íslendingar eigum að ganga fram fyrir skjöldu og afnema alfarið tolla á vörur frá fátækustu ríkjum 3. heimsins. Ég veit að menn vilja semja um slíkt í alþjóða samningum - en fátækustu þjóðir heims geta ekki beðið!
Er ekki rétt að byrja á grænmetinu - tolla í topp grænmeti á ríkustu ríkin utan EES - en afnema á móti grænmeti frá fátækustu ríki heimsins. Það er raunveruleg þróunaraðstoð!
Svo er nú það!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)