Svigrúm til leiðréttingu lána!

Þessi niðurstaða hlýtur að leiða til þess að Kaupþing fær svigrúm til leiðréttingu lána fjölskyldnanna í landinu!
mbl.is Endurgreiðslur til kröfuhafa Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Þetta hlýtur að vera niðurstaðan, eftir að millifærslan átti sér stað á milli gamla og nýja bankans, þ.e. yfirfærða lánasafnið er inni í þessu mati, þannig að áætlaðar afskriftir nýja bankans eru komnar inn í matið.

Lánasafn Nýja kaupþings er því greinilega ekki metið mikils.

Axel Jóhann Axelsson, 8.9.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Það er alkunna að margur hefur bjargað sér á flótta. Þar mun þó sjaldan eða aldrei eiga í hlut hinn hvimleiði og kauðalegi eignarfallsflótti en hann er að finna í fyrirsögn og er svo endurtekinn í einu málsgrein færslunnar hér að ofan.

Væri ekki rétt að lagfæra þetta, enginn málstaður skaðast af því að vera fram settur á réttu máli.

Hólmgeir Guðmundsson, 8.9.2009 kl. 18:01

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þið Hallur og Axel virðist báðir vera að misskilja þessa frétt. Hér er um að ræða að 20% greiðala kemur upp í almennar kröfur. Þar með er ljóst að 100% greiðsla kemur upp í forgangskröfur eins og innistæður og launakröfur starfsmanna. Þetta má sjá ef fréttin á ensku, sem vitnað er í er lesinn.

Þetta segir því lítið um það hversu mikil afföll voru á þeim hluta lánasafna Kaupþings, sem voru seld yfir í Nýja Kaupþing og þaðan af minna hversu mikil afföllin eru á lánum til einstaklinga.

Þaðan af síður segir þessi frétt okkur neitt um það hversu stór hluti þeirra affalla, sem voru á lánum til einstaklinga fara í að dekka tapaðar kröfur vegna þeirra lántaka sem eru ekki borgunarmenn fyrir sínum skuldum og þar með hversu mikið ef nokkuð svigrúm er til að veita öðrum lántakendum einhvern afslátt.

Sigurður M Grétarsson, 8.9.2009 kl. 18:16

4 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Sigurður M.

Er ekki rétt að fá þetta upp á borðið eftir innlýsingatíma krafna, og kíkja þá á hvaða kröfur hinir ýmsu vogunarsjóðir og aðrir, hafa keypt fyrir  12- 20%  af höðuðstól.

Þegar við sjáum hverjir eiga "heimilislánin og bílalánin" þá er hægt að fella niður 50% af þeim höfuðstól  og þessir eigendur mun græða nokkuð á því.

Eigendur gætu verið öruggari um greiðslur til sín ef veittur yrði góður afsláttur.

Eggert Guðmundsson, 8.9.2009 kl. 21:27

5 Smámynd: Hallur Magnússon

Hómgeir - takk fyrir þetta!

Get fullvissað þig um að ég er ekki fallvilltur - heldur hugsaði ég " fyrir leiðréttingu" þótt ég hafi skrifað "til leiðréttingu".  Að sjáflsögðu á að standa annað hvort "svigrúm fyrir leiðréttingu" eða "svigrúm til leiðréttingar".

En það er afar gott að hafa aðhald í íslenskunni.

Hallur Magnússon, 9.9.2009 kl. 15:50

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Eggert. Þú ert þarna að misskilja málið illilega. Þeir kröfuhafar, sem þú ert þarna að tala um eru kröfuhafar í gamla Kaupþing. Ég er ekki alveg klár á stöðunni með lánin en það er annað hvort búið að selja þau til Nýja Kaupþings eða að það er verið að ganga frá því á næstunni á verði, sem er búið að semja um.

Það skiptir því þessa kröfuhafa engu máli hvort lántakendum er gefinn afláttur eða ekki. Allir aflættir til lántaka með greiðslugetu til að greiða sín lán lenda því á Nýja Kaupþingi og þar með á eigendum þess. Slíkt kallar á aukið eigið fé inn í Nýja Kaupþing til að það standist kröfur um eigin fé og ég efast um að aðrir muni leggja til það eigin fé en ríkissjóður.

Lækkun lánanna munu því lenda á skattgreiðendum en ekki þeim, sem eiga kröfur í gamla Kaupþing.

Sigurður M Grétarsson, 9.9.2009 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband