Davíð Oddsson næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?

Ætli Davíð Oddsson hætti ekki sem Seðlabankastjóri og fari í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum? Friðrik Sóphusson gæti tekið varaformanninn aftur!
mbl.is Mótmælt við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Þorsteinn Jóakimsson

Örugglega. Svo er bara að ræsa til leiks þá Steingrím Hermannsson og Jón Baldvin.

Hvernig er það með Vilhjálm Bjarnason, gæti hann ekki verið vonarneisti fálkans?

Birgir Þorsteinn Jóakimsson, 25.1.2009 kl. 23:54

2 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

Það finnst mér fráleitt og ekki til þess fallið að auka fylgi flokksinns að setja arkitekt kerfissinns sem hrundi í oddvitasæti, svo ekki sé talað um hve mikið hann hefur verið fyrir í kjölfar hrunsinns

Jóhann Hallgrímsson, 25.1.2009 kl. 23:54

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Já eða íþróttaáfurinn.

hilmar jónsson, 26.1.2009 kl. 00:00

4 identicon

Ahaaaa haa...  Takk fyrir hláturskastið, sem þú gafst mér, Hallur !

rofl - Íhíííí hí hííí.... Æji, hvað það er gott að hlæja svona fyrir háttinn ! "I love it !"

Gísli (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 00:07

5 identicon

Davíð yrði formaður myndi hann bjóða sig fram. Það er 100% öruggt. Hann hefur mun meira fylgi en fólk grunar. Þessi mótmælendaelíta sem virðist ekkert hafa betra við tímann sinn að gera en berja á framrúður ráðherra bíla eða vera með læti er ekki endilega að endurspegla vilja fólksins í landinu.  Skoðanakannanir eru ekki áreiðanlegar þessa dagana.

Er Seðlabankastjóri ekki embættismaður? Er hægt að reka embættismenn fyrir engar sakir? Hvernig eru þessir ráðningarsamningar? Þurfa menn ekki að brjóta eitthvað af sér til að geta fengið brottrekstur?

Ef Þorgerður Katrín ætlar að fella Davíð, þá er hún um leið að fella sjálfa sig. Hún á sjálf ýmislegt óútskýrt sem líkur eru á að yrði notað gegn henni. Ef það á að fella Davíð, þá fellur hann með stæl. Fólk er að misreikna hann ef það heldur að hann tæmi bara skúffurnar í skrifborðinu og afhendir Þorvaldi Gylfasyni lyklana að skrifstofunni.

joi (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 00:09

6 identicon

Af hverju endilega Þorvaldi Gylfasyni?

ERu bara menn sem eiga stjórnmálaferil að baki eða föður, bróður sem fyrrum ráðherra, hæfir í þennan stól. 

Hvernig lýtur þessi stóll annars út?

Og hver var það annars sem sagði að þeir í þessu húsi nöguðu blýanta allan daginn?

Lagði þessi orð ekki á minnið, því ég hélt akki að þau mundu nokkurn tímann rifjast upp fyrir mér

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 00:25

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

 Jói

 "Þessi mótmælendaelíta sem virðist ekkert hafa betra við tímann sinn að gera en berja á framrúður ráðherra bíla eða vera með læti er ekki endilega að endurspegla vilja fólksins í landinu.  Skoðanakannanir eru ekki áreiðanlegar þessa dagana."

Þvílíkt og annað eins grátbölvað kjaftæði... 75% einstaklinga vilja ríkisstjórnina burt og í það snarasta og almennt séð telur fólk Davíð Oddson mestu ógn íslensku þjóðarinnar...AÐ reyna að halda öðru fram er dæmigerð afneitun.  Davíð mun aldrei nokkurn tíman fá það fylgi sem hann hafði áður því hann er búin að brenna allar brýr til almennings. AÐeins nokkrir frelsishyggjuhvuttar með dollarastjörnur í augunum gætu mögulega stutt hann en ekki fólk svona almennt séð.

Ef það gerast ekki almennilegar endurnýjungar innan sjálfstæðisflokksins á næstu misserum þá er hann brunarúst sem verður síðar meir að bílastæði.  

Brynjar Jóhannsson, 26.1.2009 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband