Reynt að blása lífi í líkið

Röksemdir fyrir drápsvöxtum Seðlabankans er sú að verið sé að blása lífi í íslensku krónuna. Það er hins vegar margsannað að það dugir ekki að blása lífi í liðið lík.
mbl.is Vaxtahækkun vegna IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

pfiff... hafið þið ekki lesið Frankenstein ?

Óskar Þorkelsson, 28.10.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Spámaður,þetta er rétt.Þetta er bara byrjunin,það skal blóðmjólka íslenskan almenning.Látum helvítis aumingjunum blæða,segja þeir.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 28.10.2008 kl. 16:47

3 identicon

Það er rétt hjá þér Hallur að það er erfitt að blása lífi í lík. Vandamál okkar er að við höfum engan valkost núna en krónuna. Það er væntanlega 2-5 ára ferli að fá Evru ef okkur þá stendur það til boða. Það er nánast ógjörningur að taka upp annan gjaldmiðil án þáttöku Seðlabanka viðkomandi ríkis. Við getum að sjálfsögðu "pissað á krónuna" en það bætir ekki stöðu okkar.

Núna er það að koma í ljós að forsenda IMF er að við sjálf þurfum að styrkja krónuna með okkar gjörðum. Snúa við viðskiptahallanum og koma jafnvægi á ríkisreksturinn. Væntanlega þurfum við að búa við hátt vaxtastig í lengri tíma.

Verðbólga er áætluð 16+% og núna eru vextirnir 18%. Það er algjört dráp á krónunni ef þeir hafa vexti undir verðbólgu. Hinn möguleikinn að lækka vexti og það ásamt halla á ríkisrekstri og viðskiptahalla mun grafa undan krónunni. Það verður væntanlega að skrá gengi krónunnar lágt sem fyrst því þá fer fólk að flytja inn erlendan gjaldmiðil annars er þetta gjörsamlega tapað spil.

.... IMF er ekki sá vondi þetta virðast vera einu raunhæfu ákvarðanirnar í þessari stöðu. Ef við missum þetta allt niður verðum við að loka hagkerfinu og þá förum við einangrunarleiðina eða "kúbversku leiðina" sem verður mun sársaukafyllri þá er engin leið tilbaka.

Gunn (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 18:37

4 identicon

Ef við gerum ekkert fáum við ekki lán, okkar lánstraust er gjörsamlega farið. Þá mun krónan gjörsamlega sökkva og það mun valda gríðarlegri óðaverðbólgu, 50-80% og mun verða mun sársaukafyllri. Spá því að krónan falli um 40% þegar gengi hennar verður sett á flot en erfitt verður um það að spá. Hún er mælikvarði á það hversu sjúkt hagkerfið er eins og hitamælirinn. Núna þarf að gera þessar nauðsynlegu ráðstafanir ef men gugna á því verður voðinn vís. Þetta verður ákveðið "kick start" en nauðsynlegt til að koma hjólunum af stað.

Gunn (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 18:53

5 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Gunnar þú meinar að fyrst verðum við að bakka upp brekkuna svo við getum runnið af stað. ég er sammála því að við höfum þessa krónu sem er handónýt en verðum að nota hana þar til við fáum annað það hlýtur að koma þegar vagninn er kominn á fulla ferð þá ættum við að hafa sama hraða og eu ef við keyrum samsíða ætti að vera hægt að stökkva á milli faratækja ef vilji er fyrir því það er nefnilega reynslan að við keyrum á svipuðum hraða aðrir í 2 til 4 ár þá verðum við eldsneytislaus og drögumst afturúr eða fáum eldsneyti sem ekki passar faratækinu og hraðinn verður óstjórnlegur. Í báðum tilfellum verðum við stopp  annar svegna yfirsnúnings eða þá eldsneytiskortur. það seigir sagan okkur.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 28.10.2008 kl. 20:04

6 identicon

Þetta er satt Jón. Það verður gríðarleg kjaraskerðing og atvinnuleysi.  Við komum til að borga "góðærið" dýru verði með vöxtum og vaxtavöxtum.  Við verðum að sanna okkur  og við getum komið okkur upp úr þessu.  Það er ekkert sem heitir "free lunch" í alþjóða samfélagi, barnaskapur að halda það.  Flestar þjóðir vorkenna okkur ekki neitt.  Við erum eins og dekurbarnið sem er búið að lána vasapeninga og þarf að borga þá til baka.  Þetta er uppeldislegt atriði.  Viðskiptahallinn, jafnvægi á ríkisrekstur lifa eftir efnum.  Við erum eins og áfengissjúklingurinn við þurfum að komast í meðferð.  Það er engum akkur að fá okkur á bakið eins og sníkjudýr. Væntanlega fáum við þau skilyrði að við verðum að sanna okkur fyrst.  Þetta er þá uppeldislegt atriði fyrir þjóðina.

Gunn (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 17:09

7 Smámynd: Hallur Magnússon

... ekki gleyma því að það er ferlaega þreytandi að ganga með steinvölu í skónum. Margir gæfu "free lunch" til að losna við slíka steinvölu. Við erum steinvala í skóm ESB landanna.

Hallur Magnússon, 29.10.2008 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband