Alvarlegar rangfærslur í leiðara 24 stunda!

Það voru alvarlegar rangfærslur í annars mjög góðum leiðara 24 stunda í morgun. Ritstjóranum er reyndar vorkun því rangærslunum hefur mjög verið haldið á lofti í umræðunni og eru því miður orðnar "viðtekinn sannleikur" í hugum fólks.

Í leiðaranum segir:  "Þúsundir fjölskyldna nýttu sér frábær boð bankanna um íbúðalán frá sumrinu 2004. Lánin buðust með endurskoðunarákvæði á fimm ára fresti..."

Þetta er satt ogrétt. En í kjölfarið kemur rangfærslan:

"...Íbúðalánasjóður hafði áður byrjað að bjóða 90% lánshlutfall."

Þetta er alrangt! 

Bankarnir hófu að bjóða íbúðalán sín á lágum vöxtum 24. ágúst 2004.  Alþingi heimilaði Íbúðalánasjóði að veita 90% lán 3. desember 2004.  Þá höfðu bankarnir lánað nærri 200 milljarða króna í nýjum íbúðalána - meira en þrefalda árlega fjárhæð útlána Íbúðalánasjóðs!

Af efnahagslegum ástæðum stóð ekki til að Íbúðalánasjóður lánaði 90% lán fyrr en vorið 2007.

Það vissu bankarnir - enda hafði sú fyrirætlan verið kynnt forsvarsmönnum bankanna af sérstökum verkefnahóp sem sá um undibúning 90% lánanna.

Hins vegar var ekki talin ástæða til þess að bíða með 90% lánin af efnahagslegum ástæðum - því hin nýju, óheftu lán bankanna sem jafnvel voru 100% lán - voru þegar búin að leggja drög að ofurþenslu efnahagslífins.

90% lán Íbúðalánasjóðs - sem sjaldnast voru 90% lán vegna þess að brunabótamat takmarkaði þau - skiptu engu til eða frá efnahagslega.  Þau skiptu hins vegar máli fyrir landsbyggðina - þar sem bankarnir lánuðu ekki íbúðalán.

Þetta er nú sannleikur málsins.

En ég skil ritstjóra 24 stunda að gera þessi mistök - flökkusögnin um að bankarnir hafi komið í kjölfar 90% lánanna er svo sterk í hugum fólks. En hún jafn röng fyrir það!

 PS: 

Var að horfa á Vilhjálm Egilsson framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Guðmund Bjarnasson framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs hjá Ingva Hrafni á ÍNN sjónvarpsstöðinni.

Þar hélt Vilhjálmur því enn einu sinni blákalt fram að lánshlutfall Íbúðalánasjóðs hefði verið hækkað 2003!  Guðmundur leiðrétti það reyndar. Það er ekki í fyrsta og ekki í annað skipti sem Vilhjálmur er leiðréttur með þetta. En það virðist lítið duga!

Það er því ekki að undra að ritstjóri 24 stunda hafi haldið að 90% lán Íbúðalánasjóðs hafi komið á undan íbúðalánum bankanna! Hún hefur það eftir Samtökum atvinnulífsins og öðrum aðiljum sem hafa hagsmuni af því að koma svarta pétri frá sér yfir á Íbúðalánasjóð - jafnvel með ósannyndum ef annað dugir ekki!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Sæll Hallur.

Ástæða til að halda þessum upplýsingum og staðreyndum til haga. Áróðurinn og lygi frjálshyggju-yfirgangsins og storsmsveita Viðskiptaráðs og alls konar apakatta - hefur yfirgnæft eins og þú segir.

Það eru nú ekki margir fleiri en þú og ég sem halda uppi vörnum fyrir Íbúðalánasjóð á bloggi hversdagsins . . . . . . og því þeim mun meiri ástæða til að við stöndum okkur.

Benedikt Sigurðarson, 26.9.2008 kl. 09:06

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Það er ekkert nýtt undir sólinni varðandi rangfærslur hjá 24 stundum oft á tíðum léleg blaðamennska og málin ekki skoðuð ofan í kjölinn áður en fréttin er fest á blað, en að biðja leiðréttingu er annað mál og um ramman reip að draga.

Kv,. Sigurjón

Rauða Ljónið, 26.9.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband