Gengur Samfylkingin í Sjálfstæðisflokkinn?

Á dauða mínum átti ég von frekar en gamli góði kratinn Gísli S. Einarsson myndi ganga í Sjálfstæðisflokkinn!  Og það út af Frjálslyndaflokknum!

Hvað næst?

Mun Samfylkingin ganga í Sjálfstæðisflokkinn svo Sjálfstæðisflokkurinn nái hreinum meirihluta á Alþingi og hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur?

Það myndi náttúrlega leysa forystuvanda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík - þar sem Dagur yrði að sjálfsögðu borgarstjóri og nýr leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík!

En að öllu gríni slepptu - þá er pólitíkin afar sérstök þessa dagana - svo ekki sé meira sagt!


mbl.is Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þetta gekk betur hérna um árið hjá okkur Árborgurum, Árið sem íhaldið sprengdi upp fyrri meirihluta.

Eiríkur Harðarson, 14.5.2008 kl. 13:58

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hallur, satt að segja hélt að Gísli væri fyrir löngu genginn í Sjálfstæðisflokkinn enda voru Sjálfstæðismenn á Akranesi með hann sem bæjarstjóraefni  fyrir síðustu kosninga. Svo máttu nú ekki gleyma því að Gunnar "bakari" Sigurðsson oddviti Sjálfstæðismanna á Akranesi byrjaði pólitíska ferilinn með Framsóknarflokknum. - Þetta eru bara pólitískir flóttamenn Hallur eins og Gisli Bal. bendir á í kommenti á bloggsíðu minni. - Pólitískir flóttamenn í eigin landi, svolítið líkt og hjá Palestínumönnunum sem annað hvort Skagamenn eða Reykvíkingar taka á mótí í sumar!!!!

Haraldur Bjarnason, 14.5.2008 kl. 15:22

3 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Hélt reyndar á tímabili að framsókn væri svona lítil deild í sjálfstæðisflokknum, en svo hraktist hann á vergang greyið og samfylkingin kom í staðinn.

Gísli Sigurðsson, 15.5.2008 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband