Íbúðalánasjóður hefur þegar fellt niður seðilgjöld sín!

Íbúðalánasjóður tók af skarið hvað varðar niðurfellingu seðilgjalda nú um áramótin og heyrir seðilgjald Íbúðalánasjóðs nú sögunni til!

Frá og með 1.janúar 2008 felldi Íbúðalánasjóður niður sinn hluta seðilgjalds viðskiptavina sinna.

Eftir stendur að viðskiptavinir sjóðsins þurfa að greiða 75 kr. greiðslugjald sem rennur til banka og sparisjóða sem taka við afborgunum af lánum Íbúðalánasjóðs.  Vonandi sjá bankar og sparisjóðir sér sóma í að fella niður þetta greiðslugjald - það er ekki í valdi Íbúðalánasjóðs.


Seðilgjald Íbúðalánasjóðs var áður alls 195 kr - sem var langtum lægra en almennt tíðkast með seðilgjöld - enda tók það einungis mið af sannanlegum útlögðum kosnaði - en var ekki aukatengjulind eins og seðilgjöldin eru víða.  Nú mun þessi kostnaður verða greiddur af öðrum tekjum Íbúðalánasjóðs - sem eru lántökugjöld, hóflegt vaxtaálag á útlán og tekjur vegna fjárstýringar stjóðsins.


Viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs geta  nýtt sér þann umhverfisvæna möguleika að vera með pappírslaus viðskipti. Sótt er um rafrænan greiðsluseðil á heimasíðu Íbúðalánsjóðs www.ils.is .
Beina slóðin á slíka umsókn er hér.

PS. Ég bið lesendur bloggsins mína að hafa skilning á því að þótt ég sé hættur á Íbúðalánasjóði - þá dett ég stundum ennþá í gírinn fyrir hönd sjóðsins - enda var það hlutverk mitt í 8 ár!

 


mbl.is Seðilgjöld heyri sögunni til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergþór Skúlason

Sæll Hallur, það er eðlilegt að þú dettir í gírinn við svona aðstæður.

Þetta er gott fordæmi, en ég er ekki sammála þér að þeir haf fellt niður seðilgjöldin.

Eins og þú orðar það "felldi Íbúðalánasjóður niður sinn hluta seðilgjalds" og skipti um nafn á restinni. Það er samt seðilgjald. Þessi kosnaður er tilkominn vegna þjónustu bankakerfis og Íb.lánasjóður ætti að bera hann því þetta er hluti af innri kostnaði sjóðsins, ekki kostnaður við að innheimta skuld.

Neytandi á einfaldlega rétt á að honum sé birt krafa og gert kleyft að greiða hana án frekari kostnaðar. Það er einungis ef til frekari innheimtu kemur sem kostnaður gæti fallið til.

Ekki heldur gleyma því að Íb.lánasjóður sem græðir á þjónustu bankanna. Hvernig væri verklagið innan dyra ef allir greiddu með millifærslu eða mættu á staðinn ????

 því vil ég að þeir leggi þennan lið niður líka.

baráttukveðja,

Bergþór

Bergþór Skúlason, 7.1.2008 kl. 19:12

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Ágæti Bergþór.

Það er einmitt millifærslan á heimabankanum þínum sem Íbúðalánasjóður greiðir 75 krónur fyrir. Stór hluti fyrra gjalda var reyndar greiðsla til Reiknistofu bankanna - sem eru í eigu bankanna.

 Kveðja

Hallur

Hallur Magnússon, 7.1.2008 kl. 19:28

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Nú vantar bara að pappírsframleiðendur og blekseljendur gefi varning sinn og póstburðarfólk og starfsmenn banka og Íbúðarlánasjóðs gefi vinnu sína og þá fellur um leið niður kostnaður vegna seðilsendinga, sem að öðrum kosti lendir einhvers staðar en fyrr eða síðar á lántakendum hvort sem þeir fá að sjá það beint eða ekki fyrr en óbeint.

Geir Ágústsson, 7.1.2008 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband