Síðasti dagurinn hjá Íbúðalánasjóði!

Þá er að hefjast síðasti vinnudagurinn minn hjá Íbúðalánasjóði! Það er sérkennileg tilhugsun eftir 8 ára starf að kveðja samstarfsfólkið sem hefur staðið sig svo vel í þeim ólgusjó sem Íbúðalánasjóður hefur siglt gegnum á þessu tímabili.

Mér finnst ég geta horft stoltur yfir farinn veg hjá Íbúðalánasjóði - verkefnin verið fjölmörg og áskoranirnar margar. Sjóðurinn er sterkur og með sterka stöðu í hugum almennings eins og viðhorfskannanir hafa sýnt.

Það eru fjölmörg verkefni sem ég hef unnið að og koma upp í hugann - en líklega er undirbúningur og framkvæmd breytinganna á skuldabréfaútgáfu sjóðsins sumarið 2004 það verkefni sem upp úr stendur. Það var afar erfitt og spennandi og tókst vonum framar enda unnið með öflugu fólki hérlendis og erlendis. Reyndar gjörbreytti þessi breyting íslenskum skuldabréfamarkaði og opnaði erlendum fjárfestum loks greiða leið inn á þann markað.

Fleiri verkefni mætti tiltaka, eins og vefvæðingin sem fólst í Íbúðalán.is, landsmönnum öllum til hagsbóta.

Þá hafa verið dálítil slagsmál í fjölmiðlum!

En hvað um það - ég kveð Íbúðalánasjóð sáttur og stoltur. 

Við samstarfsfólkið í sjóðnum vil ég segja:  "Takk fyrir allt - þið eruð frábær!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Noh! Hættur bara!!

Óska þér gæfu og gengis í því sem tekur við... hvað sem það er:) Gleðileg jól og takk fyrir skemmtileg (síma)samskipti á liðnum árum :)
Kv. Heiða Dagskrá  

Heiða B. Heiðars, 20.12.2007 kl. 10:38

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Er líf eftir þetta líf?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 20.12.2007 kl. 16:29

3 Smámynd: Gunnlaugur Helgason

Gangi þér allt í haginn í nýju starfi, takk fyrir hjálpina hér um árið !

Gleðileg jól ! 

Gulli Helga.

Gunnlaugur Helgason, 20.12.2007 kl. 16:30

4 Smámynd: Jóhann H.

Til hamingju með tímamótin.  Gangi þér allt í haginn í nýja starfinu. 

Gleðileg jól!

Jói Hafsteins.

Jóhann H., 20.12.2007 kl. 17:28

5 identicon

Sæll Hallur

Til hamingju með þessi stóru tímamót. Gangi þér allt í haginn.

Gleðileg Jól

Helga Sæmundsdóttir

Helga Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband