Flottur Talsmaður neytenda!

Heimasíða Talsmanns neytenda www.tn.is er ein áhugaverðasta heimasíða sem sett hefur verið upp á undanförnum vikum. Á síðunni er ekki einungis um að ræða fjölbreyttar upplýsingar, heldur jafnframt vönduð lifandi umfjöllun um hvaðeina sem snýr að neytendum.

Embætti Talsmanns neytenda er ekki gamalt þótt verkefnin séu næg og mikilvægt fyrir neytendur að vel takist til. Hingað til hefur starf talsmannsins verið til fyrirmyndar, en eftir því sem ég kemst næst stendur Talsmaður neytenda nánast einn og óstuddur í þessu mikilvæga starfi.

Þótt eldmóður sé mikill er erfitt fyrir einn einstakling að halda úti svo mikilvægu starfi til langframa.

Það að halda úti öflugri og mikilvægri heimasíðu eins og heimasíða Talsmanns neytenda er kallar á mikla vinnu. Því er það mikilvægt að embætti Talsmanns neytenda verði styrkt svo unnt verði að bæta við starfsmanni. Ég veit það af reynslu að breyting úr einyrkjastarfi yfir í tveggja manna vinnustað getur haft margföldunaráhrif í afköstum og tryggt stöðugleika og nauðsynlega framvindu.

Það er hagsmunamál neytenda að embætti Talsmanna neytenda verði styrkt og neytendur eiga það skilið.

Svo er nú það!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Við sem þekkjum eitthvað til á Norðulöndunum vitum að Íslendingar eiga margt ólært í neytendamálum; bæði við neytendur sem þrýstihópur, sem og stjórnvöld, sem hafa lengst af skammarlega lítið sinnt þessum málaflokki. Þó þetta sé skref í réta átt velti ég því fyrir mér hvort það ekki sé réttmæt krafa að efla hagsmunagæslu neytenda á vegum hins opinbera?

Jón Þór Bjarnason, 15.3.2007 kl. 12:18

2 identicon

Alveg þykir mér það magnað að hann sé bara einn í þessu streði, hafði reyndar velt því fyrir mér hvort það gæti verið þar sem ekki hefur borið mikið á embættinu frá því að það var sett á stofn. Fannst þó heldur mistæk ákvörðun hans að vera að vekja sérstaka athygli á pólitískum uppruna sínum. Heimasíðan lofar góðu og veit ég að það bíða margir spenntir eftir að heyra meira í talsmanni okkar neytenda.

Hollvinakveðjur

Gunnar Axel

Gunnar Axel (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband