Samfylkingin á sitthvorri skoðuninni á aðkomu einkafyrirtækja að orkuframleiðslufyrirtækjum?

Samfylkingarkonan Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra óttast greinilega ekki aðkomu Magma Energy að HS Orku og telur hagsmuni almennings ekki í hættu þótt einkafyrirtæki eignist hluta í orkuframleiðslufyrirtækjum. Þetta kom afar skýrt fram í viðtali á RÚV á dögunum:

Hagsmunir almennings ekki í hættu

 
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra telur hagsmuni almennings ekki í hættu þótt einkafyrirtæki eignist hluta í orkuframleiðslufyrirtækjum.

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra:
Alls ekki vegna þess að auðlindirnar eru tryggðar í eignarhaldi opinberra aðila, dreifiveituþátturinn eða sérveitustarfsemin er líka tryggð í meirihlutaeigu opin, er tryggð í meirihlutaeigu opinberra aðila og þetta er bara, þetta er áhættusami þátturinn, það er að segja rannsóknir og framleiðsla á orkunni sjálfri og síðan borga þessir aðilar rentu fyrir nýtinguna.
Og þetta er eitthvað sem að, fyrirkomulag sem að ég held að sé heppilegt og ástæðan er auðvitað sú, ég tala ekki um núna á næstunni að það skiptir mjög miklu máli fyrir okkur að orkuframleiðsla geti farið af stað og það vantar fjármagn eins og er.
Þannig að ef að fjármagn er að koma inn í orkugeirann til þess að fara af stað með framkvæmdir þá er það jákvætt án þess að ég sem slík geti sko, hafi einhvern sérstakan, einhverja sérstaka skoðun á þessu fyrirtæki umfram annað eða þessum samningi umfram annan að þá tel ég jákvætt ef að nýtt fjármagn er að koma inn í orkugeirann.
Vonandi fara þau að tala saman um þessu mál í Samfylkingunni og komi sér saman um stefnuna. Sérstaklega iðnaðarráðherrann og hinn öflugi leiðtogi Samfylkingarinnar í borgarstjórn.

mbl.is Vilja að samningur við Magma verði gerður opinber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Þetta er Samfylking í hnotskurn.  Heldur þú Hallur að Hafnarfjarðarkratar séu jafn ósáttir við samningin og Samfylkingarfólk í Reykjavík?

Samfylkingin er ekki stjórnmálaflokkur með eina stefnu, heldur kosningabandalag með völdin ein sem markmið.

G. Valdimar Valdemarsson, 1.9.2009 kl. 13:23

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Þú meinar!

Hallur Magnússon, 1.9.2009 kl. 13:40

3 Smámynd: Hallur Magnússon

Það er rétt hjá þér.

Skrítið að Samfylkingin í Borgarstjórn Reykjavíkur talar um "brunaútsölu" á meðan Lúðvík flokksmaður þeirra í Hafnarvirði vill endilega selja á þessu verði!

Verð reyndar að segja að mér finnst einungis 10% afföll á hlutabréfaverði nú og frá því fyrir hrun vera nokkuð góður árangur.

Viss um að ekkert íslemskt félag - nema innheimtulögfræðistofa - gæti státað af sviðuðum árangri!

Hallur Magnússon, 1.9.2009 kl. 13:47

4 identicon

Ekki get ég séð að mismunandi skoðanir megi ekki rúmast í stjórmálaflokki sem þetta mál, Hallur. Þetta er dæmigert svæðisbundið mál. Má ekki vera með mismunandi skoðanir í þínum stjórnmálaflokki? Mismunandi skoðanir eru í öllum flokkum. Það gjaldfellur ekki þann stjórnmálaflokk.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 14:01

5 Smámynd: Gunnar Þór Gunnarsson

Allir stjórnmálaflokkar er gjaldfelldir sem passa ekki upp á að halda eignarhaldi á mjólkurkú landsmanna.

Gunnar Þór Gunnarsson, 1.9.2009 kl. 14:15

6 Smámynd: Hallur Magnússon

Eignarhaldið á mjólkurkú landsmanna er tryggt - ef þú ert að tala um orkuna.

Við leigjum hins vegar orkuna gegn gjaldi í tiltekinn tíma.

Hallur Magnússon, 1.9.2009 kl. 15:02

7 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Gísli það væri í lagi ef það væru tvær skoðanir í einstaka málum, en það er bara ekki þannig.  Það er regla að það séu tvær skoðanir á öllum málum í Samfylkingunni nema aðildinni að ESB og samþykktinni á IceSave ábyrgðinni.  

Þar var hjörðin sammála og samþykkti samninginn óséðan og reynir svo eftir á að breyta sögunni.

G. Valdimar Valdemarsson, 2.9.2009 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband