Svörtulofta-Skotta komin á kreik!

Það að kveða niður Verðbólgudrauginn er barnaleikur miðað við það að Svörtulofta-Skotta komist á kreik!  Ekki furða að Geir Haarde skjálfi á beinunum!


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ef Davíð kemur aftur inn í stjórnmálin er þá ekki líklegt að Guðni komi einnig aftur - Miðjuflokkurinn - Aðdáun Guðna á Davíð er öllum ljós og Bjarni Harðar. og Guðni eru miklir vinir og ESB- andstæðingar og Styrmir hefur sagt að ef ESB- verði samþykkt klofnar flokkurinn - nýtt stjórnmálaafl -  

Óðinn Þórisson, 4.12.2008 kl. 08:18

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Óðinn!

Þú meinar Bændaflokkur Suðurlands!  Ekki gleyma að Davíð er Selfyssingur!

Nei, svona án gríns, þá hef ég enga trú á því að Guðni haldi áfram í pólitík.

Hins vegar gæti hann dregið aðra gamla, fúna rafta sjó.

Hallur Magnússon, 4.12.2008 kl. 08:29

3 identicon

Ég skil ekki það eru allir á móti Davíð, og allir halda að allt sé honum að kenna en áfram situr hann og það sem fastast. Er maðurinn virkilega svona klár því alltaf kemur hann niður á lappirnar eins og KÖTTURINN. Svo hótar hann að fara aftur í stjórnmál og allir skjálfa á beinunum. Ég myndi ekki kjósa hann. Hvað er í gangi hefur maðurinn svona mikin sannfæringakraft eða ???

Guðrún Vestfirðingur (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband