Klofningur í Samfylkingunni?

Er klofningur í Samfylkingunni að koma upp á yfirborðið? Að sjálfsögðu munu ráðherrar Samfylkingarinnar halda dauðahaldi í ráðherrastóla sína - sama hvað á gengur og hvaða mistök þeir hafa gert og munu gera. Það sína dæmin.

En Gylfi Arnbjörnsson Samfylkingarmaður og forseti ASÍ er á öðru máli!

Það er reyndar einnig Samfylkingarmaðurinn Mörður Árnason - ef marka má viðtal við hann í sjónvarpi í  vikunni - þar sem hann var í gallharðri stjórnarandstöðu.  End Samfylkingin stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn!

Það er reyndar ekkert skrítið að Samfylkingarmenn í verkalýðshreyfingunni séu orðnir þreyttir á Samfylkingunni í ríkisstjórn. Samfylkinginm í ríkisstjórn hefur sífellt boðaðað samráð við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins - en lítið sem ekkert orðið af samráði.

Enda eru það ASÍ og Samtök atvinnulífsins sem hafa forgöngu um raunhæfar efnahagsaðgerðir. Ekki er það ríkisstjórnin!


mbl.is Vegið ómaklega að ráðherrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvita er það sárt fyrir Sollu að viðurkenna að hennar fólk á líka þátt í þessu hvað með Jón Sig?

Hannes (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 15:02

2 Smámynd: Hallur Magnússon

Arnþór!

Hvenær varð  Samfylkingin með 110% fylgi?

Ég myndi nú ekki treysta því að það sé meiri sátt innan Samfylkingarinnar :)

Hallur Magnússon, 11.11.2008 kl. 16:42

3 Smámynd: Hallur Magnússon

Já,

og hvenær varð Samfylkingin 120 þúsund manna hreyfing á Íslandi?

Hallur Magnússon, 11.11.2008 kl. 16:43

4 identicon

Maður veit satt best að segja ekki hvort maður á að hlæja eða gráta þegar maður les svona "statement" frá yfirlýstum framsóknarmanni. Dettur þér eitt augnablik í hug að þú getir beint athyglinni frá þessu rugli ykkar í framsókn með þessu bulli? Held reyndar að þú sért ekki nógu vondur einstaklingur til að vera í framsókn yfirleitt og enn síður að verja þennan vonlausa "málstað".

Bóbó (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 18:43

5 Smámynd: Hallur Magnússon

Bóbó minn.

Ég er nú eldri en tvævetur - og er ekki að reyna að beina athyglinni frá einu né neinu.

Hins vegar hefur Samfylkingin leikið þann leik - og komist upp með - þar sem sá flokkur er bæði í stjórn og stjórnarandstöðu!

Hvernig skýrir þú þennan alvarlega ágreining - þar sem formaður flokks nánast afneitar fyrrum dyggum stuðningsmanni sínum - núverandi forseta ASÍ!

Hallur Magnússon, 11.11.2008 kl. 19:50

6 Smámynd: Sævar Helgason

Er þetta tilraun til smjörklípu hjá þér Hallur ?  Það ríkir skoðanafrelsi innan Samfylkingarinnar og fólkið tjáir sig opinberlega.  Það er alveg eitur í beinum þeirra fáu Framsóknarmanna sem ennþá eru þeim bænum. Þar senda menn  nafnlaus skeyti til fjölmiðla með rógi um samflokksmenn- slæmt þegar það kemst óvart í hámæli hver sendir.   Björn Ingi kallaði þetta hnífasett í bakið.  Hnífakastið hjá Bjarna H. geigaði vegna innsláttarvillu á tölvu og fór til fjölmiðla.... vesen.

Sævar Helgason, 11.11.2008 kl. 21:37

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Tveir dyggir framsóknarmenn úr Norðurlandi vestra taka varaformann og fyrrum formann flokksins á beinið og saka þá í bréfi nánast um að hafa eyðilagt Framsóknarflokkinn og þjóðfélagið í leiðinni. Þingmaður flokksins ákveður að leka þessu bréfi nafnlaust til fjölmiðla.

Ef það er ekki klofningur verður að skilgreina orðið upp á nýtt.

Theódór Norðkvist, 11.11.2008 kl. 22:04

8 Smámynd: Hallur Magnússon

Elskurnar mínar!

Eruð þið alveg að missa ykkur?

Byrjumst neðst.  Theodór. Hvar er verið að fjalla um klofning eða klofning ekki í Framsóknarflokknum í þessum pistli? Mögulegur klofningur í Framsóknarflokknum breytir ekki spurningunni um klofning í Samfylkingunni - sem er bæði í stjórn og stjórnarandstöðu!

Ægir. Samfylkingin er ekki flokkur með tugþúsundir meðlima. Framsóknarflokkurinn er með 12 þúsund skráða meðlimi - og já, þar er skoðanamunur - en hvað kemur það Samfylkingunni ogmögulegum klofnngi þar við?

Sævar.

Mér er sama hvað þú gerir við þitt margarín.  Það eru í það minnsta vedrulegir flokkadrættir - eins og fram hefur komið. Og enn og einu sinni - þá er Samfylkingin bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Sé ekki að það komi Framsóknarmönnum við.

En það er jafn ljóst að Framsóknarmenn tjá sig almennt opinberlega - þótt tveir eldri menn hafi kosið að gera það á persónulegan hátt. Þú þarft bara að renna örlítið yfir blogg nokkurra Framsóknarmanna - eins og mín, Bjarna Harðarsonar, Friðriks Jónssonar, Gests Guðjðónssonar, Salvara Gissurardótur, G Vald, Helgu Sigrúnar og fleiri og fleiri til að sjá það.

Og aftur að Arnþóri. 

Maðurin heldur fram - óbeint að vísu - að skráðir Samfylkingarmenn séu 120 þúsund.  Þvílíkt bull!

Ég veit að það er dálítið sárt þegar bent er á ágreining innan Samfylkingarinnar - og að Samfylkingin ber kápuna á báðum öxlum - er bæði í stjórn - þar sem hún reynir að frýja sig ábyrgð - og í stjórnarandstöðu - þar sem hún gjammar - en fylgir ekki neinu eftir.  Þannig að ég skil tilfinningar ykkar - en þið breytið ekki þessumstaðreyndum með því að skamma mig og Framsóknarflokkinn. Það er klárt.

Hallur Magnússon, 11.11.2008 kl. 22:27

9 Smámynd: Hallur Magnússon

Arnþór.

Þessar tölur eru einfaldlega rangar hjá þér!  Svo einfalt er það. "Ætli framsókn sé ekki með...".  Þvílíkt bull. Rauntölur að undanförnu eru sitt hvorum megin við 10% - svo Samfylkingin samkvæmt því ætti að vera með 110% fylgi - sem er ekki hægt eins og þú veist.

Hallur Magnússon, 12.11.2008 kl. 07:45

10 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hallur.... hættu þessu brölti og komdu í flokk sem ér á lífi... þú verður bara þunglyndur þarna í Hrifluflokknum

Jón Ingi Cæsarsson, 12.11.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband