Þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB - strax!

Það á að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort Íslendingar eigi að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið - og það strax!  Málið er á dagskrá - núna! Það á ekki að líðast að misvitrir pólitíkusar bulli fram og til baka um málið - og reyni að halda því fram að þetta sé seinna tíma mál!

Jónaz Haralz sagði allt sem segja þarf um þörfina á breytingu krónunnar í Silfri Egils í dag.  Krónan er ónýt. Besti kosturinn er að taka upp Evru. Það er alveg ljóst. Til þess þurfum við væntanlega að ganga í Evrópusambandið.  En það er þjóðin sem á að ákveða hvort við gerum það.

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins vill að þjóðin ákveði hvort farið verði í aðildarviðræður. Samfylkingin vill í aðildarviðræður. Stór hluti Sjálfstæðismanna vill athuga hvað aðildarviðræður gefa okkur.

Það er því ekki eftir neinu að bíða. Ingibjörg Sólrún á að setja atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður á oddinn í stjórnarsamstarfinu. Guðni hlýtur að bakka hana upp. Get ekki séð að Geir eða Björn Bjarnason séu í stöðu til að setja sig upp á móti slíkri atkvæðagreiðslu.

Þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda skuli í aðildarviðræður við ESB - fyrir jól takk!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll; Hallur !

Ertu ekki Íslendingur ? Hvaða helvítis eymdar upphrópanir, sem uppgjafartónn er þetta, í þér, Hallur minn ?

Fyrir það fyrsta; þurfum við, að steypa Alþingi, og þessu niðurrifsliði öllu, hvert þar hímir, okkur landsmönnum, til stórtjóns, og koma á stjórn bænda - sjómanna - verkamanna og iðnaðarmanna, sem fyrst.

Rétt; að við hvítliðar bendum þér, einnig á, að ESB/NATÓ samsteypan er, að stærstum parti leppríkjabandalag Bandaríkjamanna. Eigum við; yfirhöfuð, eitthvert erindi, inn í það forað, Hallur minn ?

Krónan er ekki völd að því; hversu komið er, heldur það gróða hyski, sem þú og þínir líkar, vilja halda við völd, enn hér á Fróni, og haldið, að sé ósnertanlegt fólk; líkt og Goðum bornar verur væru.

Rumskaðu nú, Hallur minn, og komdu með betri hugmyndir, en þessa helvítis klisju ! 

Með beztu þjóðernissinna kveðjum; samt, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 14:32

2 identicon

Mikið er ég sammála þér Hallur,  það er ekki eftir neinu að bíða menn fá þá úr því skorið hvað meirihluti þjóðarinar vill.

Ásgeir Ingvi Jónsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 14:39

4 identicon

Sæll Hallur.

Mikið er ég samála þér, atkvæðagreiðslu um ESB sem fyrst, þó fyrr hefði verið. Krónan er búin að vera.

 Og svona afturhalds öfl eins og Óskar verða bara að opna augun ef þeir kunna hag þjóðarinnar eitthvað.

Mbk áfram Ísland

Sigurður Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 17:39

5 identicon

 Lýðveldið Ísland og Evrópusambandið  


Hæstvirtur forsætisráðherra Davíð Oddsson fór fyrst fyrir ríkisstjórn 1991 þá í samstarfi með Alþýðuflokknum (Samfylkingin). Formaður Alþýðuflokksins var Jón Baldvin Hannibalsson og jafnframt utanríkisráðherra í þeirri ríkisstjórn. Hún gekk undir nafninu Viðeyjarstjórnin.

Á þeim tíma leiddi Jón Baldvin þá vinnu að koma í höfn samningi um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og við þau tímamót þegar skrifað var undir samninginn lét ríkisstjórnin í það skína að við Íslendingar hefðum fengið nánast allt fyrir ekkert og velmegun myndi aukast verulega þegar fram liðu stundir.

Andstæðingar aðildar vildu láta reyna á tvíhliða viðræður við Evrópusambandið (ESB) um samning sem yrði svo hægt að auka að efni til eftir atvikum. Þeir sem voru á móti EES samningnum töldu hann ekki verða til góðs því með honum yrðu tekin tvö skref af þremur inn í ESB sem hefði í för með sér brot á fullveldisákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar.

Annað ákvæði í EES- samningnum um frjálst fjármangsflæði milli aðildarríkjanna skipti sköpum og fullveldissinnar treystu því ekki að okkar litla hagkerfi stæðist ágang erlends fjármagns og myndi því hreinlega sogast inn í hringiðu hagkerfis Evrópusambandslandanna. Þetta myndi leiða til þess að Íslendingar misstu efnahagslegt sjálfstæði sitt í framtíðinni.

Eins og sjá má á þjóðmálaumræðunni í dag hafa erlendar skuldir landsmanna vaxið langt umfram getu okkar litla hagkerfis eftir inngönguna í EES og hafa þær aldrei verið meiri. Góðæriskenningin á sínar rætur frá þessari þróun, skuldir undirstaðan þó þeirra væri aldrei getið í sjálfum málflutningnum þ.e.a.s. þeirra sem studdu EES samninginn. Sannarlega hafa þær verkað sem driffjöður á lífæð hagkerfisins hér á landi, já, hér er verið að tala um skuldir, sem jafnframt hafa verið stór þáttur stöðugleikans, svokallaða.

En hvar er hin raunverulega framleiðni? Uppsveifluna í efnahagslífinu má rekja að mestu leyti til uppbyggingar á Stór- Reykjavíkursvæðinu sem varð til vegna landsbyggðarflóttans sem hefur verið mikill síðustu tvo áratugina. Hornsteinn þessarar þróunar, (landsbyggðarflóttinn annars vegar og fjármagnsstreymið til uppbyggingar hér syðra hins vegar) var lagður með kvótabraskkerfinu sem tryggt var svo í sessi með aðildinni að EES samningnum, áratug síðar. Þetta gerði hinum fáu útvöldu kleift að fjármagna mestu búsyfjan af mannavöldum í sögu þjóðarinnar.

Alls kyns spákaupmennska hefur rutt sér til rúms síðustu árin þar sem arður er gerður úr væntingum og greiddur út í milljörðum til réttra aðila. Þetta hefur verið að gerast í íslensku atvinnulífi og nú síðast í sjávarútveginum á Akureyri, svo tekið sé dæmi. Sameiningarferli íslenskra fyrirtækja undir nafninu ,,Hagræðing” er eingöngu til þess fallið að fyrirtækin geti haldið sjó á meðan þau eru að ná þeim stærðum á markaðinum að þau verði góður fjárfestingarkostur fyrir stóru erlendu fjárfestana sem bíða handan við hornið.

Lykilinn til að ná þessum markmiðum endanlega er innganga okkar í ESB svo að erlendir fjárfestar geti eignast hér áhrif og völd í framtíðinni í okkar annars auðuga landi. Með inngöngunni myndu hinir fáu útvöldu áskotnast mikið fé við að selja auðlindir íslensku þjóðarinar ásamt réttindum til lands og sjávar sem þeir hafa verið að söðla undir sig síðustu misserin geng vilja þorra landsmanna.

Íslenskum útflutningsfyrirtækum er fyrirmunað að stunda sjálfbæran og heilbrigðan atvinnurekstur svo sem í sjávarútvegi og iðnaði. Þau heyja allt að því vonlausa baráttu vegna kvótabraksins og hátt gengis íslensku krónunnar en í staðinn hefur rekstrargrundvelli þeirra verið haldið gangandi með stöðugu flæði af erlendu lánsfé inn í hagkerfið. Gjaldþrot hafa verðið með mesta móti á síðasta ári og sér ekki fyrir endann á þeirri óheilla þróun.

Samtök iðnaðarins hafa staðfest flótta iðnfyrirtækja frá Íslandi. Þreytumerki hafa líka komið fram hjá fyrirtækjum sem framleiða gjaldeyrissparandi vörur fyrir innanlandsmarkað og eru í samkeppni við innfluttar vörur sem eru ódýrari en ella vegna gjaldeyrisútsölunnar. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Sveinn Hannesson vísaði til þeirra staðreynda í Viðskiptablaði Mbl. 26. febrúar s.l. þegar hann sagði að mörg fyrirtæki væru í rekstri þrátt fyrir að í raun væru þau löngu orðin gjaldþrota. Þar kom einnig fram að Samtök iðnaðarins teldu að full aðild að ESB og upptaka evru væri besta vörnin til að bæta markaðsstöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja.

Hér ber að hafa í huga þegar Íslendingar gerðust aðilar að EES samningnum töldu sömu aðilar að stigið hefði verið eitt stærsta skref til sóknar fyrir atvinnulífið hér á landi. Stundum verður manni á að þekkja ekki muninn á vörn og sókn þegar kemur að framsetningu markaðsmála.

Matarbúr landsmanna, íslenski landbúnaðurinn, sem er einn stærsti öryggisþáttur í almannavörnum þjóðarinar, vegna legu landsins sem eyríki, er í hættu vegna áhrifa frá Evrópusamrunnanum. Hörðustu stuðningsmenn aðildar að ESB er að finna í Samfylkingunni og vilja þeir hefja aðildarviðræður sem fyrst. Framsóknarflokkurinn er líklegastur ásamt Samfylkingunni að vera í þeirri ríkisstjórn sem myndi samþykkja inngöngu okkar inn í Evrópusambandið.

Hæstvirtur utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sem settist í stól fyrirrennara síns Jón Baldvins hefur verið að undirbúa jarðveginn fyrir seinni áfangann að Ísland geti tekið þriðja skrefið inn í ESB. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála í umræðunni um ESB hér á landi eftir að verðandi forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson tekur við starfanum 15 september n.k úr hendi núverandi hæstvirts forsætisráðherra Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu sjómannadaginn 6.júni 2004

P.S. Vilja menn eiga þann möguleika að herskylda verði í framtíðinni á Íslandi?  Ef svo er sem dæmi kjósa menn að fara í Evrópusambandið.

B.N. (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 17:50

6 identicon

Sælir; enn !

Sigurður ! Varlega; varlega, Sigurður minn. Ég átti að árétta, hér að ofan, að ESB er í óslítanlegri samsteypu við NATÓ. Það eitt og sér; útilokar aðild Íslands, að Evrópusambandinu, Sigurður minn. Nóg er samt; verkefnið, að koma okkur út úr NATÓ, Sigurður minn.

Og annað; við hvítliðar erum þjóðræknir mjög, og munum niðurlægingar tímabilið 1262 - 1944, mun betur, en þið frjálshyggjukapítalízku sinnandi, en,........ því miður, mis vel upplýstu.

Baldvin ! Í Guðs bænum; ekki nefna skúrkinn Davíð Oddsson, eða þá Halldór Ásgrímsson ''háttvirta''. Þetta eru mestu skaðvaldar, síðari tíma Íslands sögunnar.

Með beztu kveðjum, á ný /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 18:06

7 Smámynd: Hallur Magnússon

Ágæti Óskar!

Af hverju ertu með rússneska tvíhöfða örninn sem logo hjá þér?

Hefði ekki verið nær að nota gamla góða íslenska fálkan á bláum grunni?

kv

Hallur

Hallur Magnússon, 7.9.2008 kl. 18:24

8 identicon

Sælir allir

Hvað er þetta Óskar með að setja alltaf minn á eftir nafninu mínu:-) hehe

Óskar ef ekki er horft til nýra leiða eins og ESB hvað er það sem þér leggið til að gert verði??? það væri fróðlegt að vita.....

Hvað Davíð varðar var mart sem hann og hans ríkisstjórnir stóðu fyrir sem lofsamlegt er. Enn það er ekki svo að neinn getur gert allt rétt og sumar ákvarðanir hefðu mátt vera betri. Eins og einn sagði ef maður tekur 65% af ákvörðunum rétt þá er maður að gera nokkuð góða hluti.

Það verður seint sagt Óskar að þetta vinstra-hyski hafi verið að gera góða hluti. Væru enn meira rugli ef það lið hefði verið hér við völd síðust 18 ár........Kolbrún, Ögmudur og Steingrímur hehehe þetta er sem sagt þitt lið..... 

Sigurður Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 18:30

9 identicon

Sælir; á ný !

Hallur ! Það er; í minningu okkar kæra Miklagarðsríkis (Austurrómverska ríkisins), hvar ég hefi Tvíhöfðann, í miklum metum, að sjálfsögðu.

Sigurður ! Segi enn; hverfum fremur, til hinna fyrri kyrrlátu hátta, sem við munum bezt, hver á unglingsaldri vorum, um 1970. Alþjóðahyggjan, kann að verða smáum samfélögum, skeinuhætt mjög, sem þjóðerni öllu.

Nei; Steingrímur og hans fólk er ekki mitt lið, fremur en ódámurinn Davíð, og hans líkar. Einnig; svo ljóst sé,, þá vil ég afnám Alþingis, og upptöku Alþýðuþjóðveldis, með stjórn bænda - sjómanna - verkamanna og iðnaðar manna, svo skýrt sé. 

Með beztu kveðjum, enn /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 19:04

10 identicon

 váááá

Óskar þú ert magnaður.................. bullið sem kemur frá þér

Enn það er ekki mikið baklandið sem þú hefur svo draumar þínir verði að veruleika í þessu

Sigurður Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 19:51

11 Smámynd: Óðinn Þórisson

ESB- aðild er ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. Það er spurning hvort einhver flokkur setur þetta á oddinn í næstu kosningum þá skulum við spjalla saman þ.e eftir 3.ár.

Óðinn Þórisson, 7.9.2008 kl. 20:01

12 identicon

Sælir; sem fyrr !

Sigurður ! Ég hygg; að ég muni ekki biðja þig, öðrum fremur, forláts, á fornyrðislagi mínu, né háttum öllum.

Spyrjum að leikslokum; og hver muni hæst hlægja, þá upp er staðið, Sigurður minn, að nokkru. Fremur ódýr slóð; að afgreiða orðræðu mína, sem annarra, með ''bull'' hugtakinu, Sigurður minn.

Skilur ósköp lítið eftir; til leiðsagnar frekari umræðna, að kalla.

Með beztu kveðjum; sem ætíð, samt - piltar /

Óskar Helgi Helgason    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 20:16

13 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ef Framsókn lofar mér því að ísland verði komið í ESB innan fárra ára mun ég kjósa Framsókn.. einfalt mál. 

Óskar Þorkelsson, 7.9.2008 kl. 21:05

14 identicon

Sammála sammála sammála, drífa í því að kynna fólki kosti og galla evrunnar.  Láta alþýðuna kjósa um þetta. Það er alveg greinilegt að þeir sem vilja halda öllu óbreyttu hér og í hers höndum hafa það svo gott að þeir eru hræddir við að missa eitthvað undan eigin rassi.

Þröstur (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband