Ólafur Þ. Stephensen langbesti kosturinn í stöðunni!

Ólafur Þ. Stephensen var langbesti kosturinn sem ritstjóri í stað Styrmis Gunnarssonar.  Ólafi bíður það verkefni að reisa Morgunblaðið aftur við sem öflugast dagblað landsins, en blaðið hefur mátt muna sinn fífil fegri á undanförum misserum.

Ólafur hefur sýnt það með starfi sínu á 24 stundum að hann er til alls líklegur.

Skemmtileg tilviljun að ég var einmitt að blogga um Ólaf og Morgunblaðið í bloggi mínu í gærkvöldi og sagðii meðal annars:

Ólafur Þ. Stephensen hefur gert kraftaverk með 24 stundir! Ólafur tók við deyjandi blaði - Blaðinu - breytti því í 24 stundir - og breytt því í áhugavert, fjölbreytt og skemmtilegt dagblað - sem fjölskyldan togast á um á morgnanna.

Ef Ólafur tekur ekki við Mogganum þegar Styrmir hættir - þá held ég að Mogginn geti bara pakkað saman og komið út sem helgarblað 24 stunda í framtíðinni!

Spútnikblöðin 24 stundir og Viðskiptablaðið!


mbl.is Ólafur nýr ritstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sturla Snorrason

Sammála, Ólafur langbestur.

Sturla Snorrason, 23.4.2008 kl. 17:34

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

alveg er mér sama.. hef ekki lesið morgunblaðið í pappírsútgáfu árum saman.. það breytist ekkert við það þótt þeir ráði mann sem er undir sextugt í starf Styrmis...

Óskar Þorkelsson, 23.4.2008 kl. 20:04

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Alveg sammála þessu, Ólafur er fínn.

Marta B Helgadóttir, 24.4.2008 kl. 15:14

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sammála þér enn og aftur félagi Hallur - Gleðilegt sumar karlinn

Haraldur Bjarnason, 24.4.2008 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband