Fallast Frakkar og Bretar í faðma?

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti virtist ná eyrum breskrar þingmanna í Westminster í dag þar sem hann hélt stórmerka ræðu - sem varð til þess að ég hljóp nokkuð lengur á hlaupabrettinu í Hreyfingu en til stóð til að hlusta á kallinn - en það var sýnt beint frá ræðunni á einhverri fréttastöðinni þar sem hin hljómfagra franska var jafnóðum þýdd yfir á engilsaxnesku.

Það er greinilegt að Sarkozy leggur megináherslu á að ná góðum tengslum við Breta og bresku ríkisstjórnina. Ræddi um óaðskiljanlega samtvinnun sögu Englands og Frakklands undanfarin 1000 ár eða allt frá því afkomandi Göngu-Hrólfs - Vilhjálmur bastarður eða sigursæli eins og Sarkozy nefndi hann - hélt frá Normandí til Englands og gerðist konungur þar 1066!

Sarkozy staldraði sérstaklega við þá þakkarskuld sem Frakkar stæðu við Englendinga - sem í tvígang á 20.öldinni hefðu fórnað tugþúsundum sona sinna á vígvöllum meginlands Evrópu til að tryggja frelsi og lýðræði Frakka.

Sarkozy ræddi ekki sérstaklega um það við hverja Englendingar börðust við hlið Frakka í tveimur heimsstyrjöldum - en það fór aðeins um mig hrollur þegar ég mundi hversu köldu andar milli Sarkozy og Angelu Merkel kanzlara Þýskalands!

Sarkozy virðist leggja mikið á sig til að ná góðu sambandi við Breta og mér sýnist allar líkur á að framundan geti verið nýjir tímar náinnar samvinnu þessara ríkja. Reyndar eru hæg heimatökin þar sem Sarkozy og Brown forsætisráðherra Bretlands eru góðir kunningjar frá þeim tíma sem þeir gegndu samhliða embætti fjármálaráðherra í hvoru ríkinu fyrir sig.

Það vekur líka athygli hvað leiðtogarnir ætla að ræða - meðal annars samstarf á sviði hermála, kjarnorkumála og á sviði innflytjendamála!

Þess má geta að forsetafrú okkar mun sitja veislu með hinni nýju forsetafrú Frakklands í Lundúnum ásamt fleiri leiðtogafrúm Evrópu af tilefni heimsóknar Sarkozys.

Hér má reyndar heyra forsetafrúnna frönsku syngja um ástina!

... og hér um eitthvað sem ég hef enga hugmynd um hvað fjallar um - en er bara svo fallegt!


mbl.is Sarkozy heitir að senda fleiri hermenn til Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég held að Sarkozy sé einn um þessa skoðun að gerast nánari bandamaður Breta og þá USA um leið..  Frökkum almennt hugnast ekki sérlega vel að mæra breta (enskumælandi fólk) á einn eða neinn hátt.

Er ekki Sarkozy nýbúinn að líða kosningaósigur í sveitastjórnarkosningum í Frakkaríki ?

Óskar Þorkelsson, 26.3.2008 kl. 20:18

2 Smámynd: Gísli Tryggvason

Trés belle.

Gísli Tryggvason, 26.3.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband